Fara í efni

Tilveran Studio

Lítið boutique-stúdíó í Garðabæ þar sem persónuleg nálgun, fagmennska og vellíðan mætast.

Tímar & námskeið

  • Barre - styrkur, liðleiki & líkamsbeiting

    Barre er fjölbreytt og áhrifaríkt æfingakerfi sem sameinar styrktar- og þolæfingar, teygjur, hreyfanleika og æfingar sem stuðla að góðri líkamsbeitingu. Áhersla er lögð á nákvæmar hreyfingar, líkamsstöðu, jafnvægi og stöðugleik og öndun. Æfingarnar fara fram við stöng og á dýnu. Æfingarnar henta mismunandi getustigum og hægt er að aðlaga þær að hverjum og einum.

  • Yin yoga & bandvefslosun

    Rólegir tímar þar sem unnið er með bandvefslosun með boltum og léttum teygjum. Farið er í djúpar Yin teygjur þar sem stöðum er haldið lengi og hjálpa taugakerfinu að gefa betur eftir. Þessir tímar eru góðir til að ná endurheimt og róa huga og líkama.

  • Yoga 60+

    Í tímunum styrkir þú líkamann, eykur liðleika, bætir jafnvægi og samhæfingu. Æfingarnar mýkja bandvef, draga úr stífleika, auka blóðflæði og næringu til vefja, auk þess sem þær geta stuðlað að bættri líkamsstöðu og minnkað verki.

  • Mömmutímar

    Æfingarnar byggja á barre æfingakerfinu, þar sem við vinnum með stöðugleika, kjarnastyrk og líkamsbeitingu. Barre er einstaklega skemmtilegt og áhrifaríkt æfingakerfi sem hentar vel eftir meðgöngu þar sem þú styrkir djúp vöðva, mjaðmagrind og bak og við vinnum aðallega með eigin líkamsþyngd og létt lóð.

  • Yoga Nidra

    Yoga Nidra er djúpslökun og hugleiðslutækni sem nýtir náttúrulegt ferli svefnsins til að stuðla að djúpri hvíld og endurnæringu. Líkaminn fær tækifæri til að hvílast á meðan hugurinn er vakandi og meðvitaður. Áherslan færist frá því að hugsa og gera yfir í að finna, skynja og einfaldlega vera.

Svona varð Tilveran til

Tilveran varð til út frá áralöngum áhuga mínum á manneskjunni sem heild, líkamanum, hreyfingu, heilsu og því samspili sem er á milli líkamlegrar og andlegrar líðan. Í gegnum árin hef ég menntað mig og sótt þekkingu á ólíkum sviðum, meðal annars í hreyfingu, jákvæðri sálfræði, núvitund og lífsráðgjöf. Smám saman varð sýnin skýrari og með henni löngunin til að skapa stað þar sem ég gæti sameinað þessa þekkingu og nálgast hreyfingu og heilsu á breiðari hátt. Mig langaði að skapa lítið og persónulegt stúdíó þar sem fólk fengi góða leiðsögn, fjölbreytta hreyfingu og svigrúm til að rækta líkamann á sínum forsendum. Stað þar sem markmiðið er ekki eingöngu að verða sterkari eða komast í betra form, heldur að hreyfa sig vel, viðhalda getu líkamans og líða vel í honum í dag og til framtíðar. Úr þessari hugmynd varð Tilveran Stúdíó til.

Staður til að mæta sér, hlúa að sér, anda og einfaldlega vera til.

Bóka tíma

Algengar spurningar

Get ég skráð mig í prufutíma?

Það er alltaf velkomið að koma í prufutíma. Tíminn er öllum að kostnaðarlausu, en mikilvægt er að skrá sig fyrirfram þar sem takmarkaður fjöldi er í hverjum tíma.

Hversu margir eru í hverjum tíma?

Við erum með 14–16 iðkendur í hverjum tíma svo allir hafi gott pláss til að æfa og fái þá athygli og leiðsögn sem þeir þurfa.

Hvað þarf ég að hafa með mér í tíma?

Allur æfingabúnaður er á staðnum. Þér er velkomið að taka með þér jógahandklæði, koma í pilates sokkum eða annað sem þú þarft eftir því sem hentar.

Þarf ég að hafa grunn í dansi til að geta mætt í barre-tíma?

Nei, tímarnir henta öllum, bæði byrjendum og lengra komnum. Allar æfingar eru skalanlegar og því er hægt að aðlaga þær að þörfum hvers og eins.

Eru búningsklefar og sturtur?

Það er búningsherbergi, tvö salerni og ein sturta sem allir iðkendur hafa aðgang að.

Hvar er best að leggja?

Það eru tveir inngangar í stúdíóið. Það er nóg af bílastæðum en það er bæði hægt er að leggja á Garðatorgi, í bílakjallaranum og við Hrísmóa (hurð með appelsínugulu skilti).

Er pláss fyrir barnavagna fyrir mömmutímana?

Það er nóg pláss bæði fyrir framan og aftan. Inngangurinn við Garðatorg er innandyra, þannig að hægt er að koma með börnin og leyfa þeim að sofa inni.